mán 04. október 2004 12:37
Risa slúður úr íslenska boltanum
Guðjón Þórðarson
Guðjón Þórðarson
Samkvæmt heimildum fotbolti.net er að vænta stórfrétta frá Grindavík á næstunni. Talað er um að Grindvíkingar séu búnir að semja munnlega við Guðjón Þórðarson um að taka að sér nokkurs konar knattspyrnulega yfirstjórn hjá félaginu.

Þar að auki munu þeir fá Milan Stefán Jankovic til að vera þjálfari liðsins. Þetta er áþekkt kerfi og reynst hefur FH ingum einkar vel í sumar þar sem Leifur Garðars sér um æfingar og Óli Jóh um yfirstjórn liðsins.

Í samtali við sjónvarpstöðina Sýn, eftir bikarúrslitaleikinn um síðustu helgi, svaraði Milan því beint út að hann væri ekki að taka við Grindavíkurliðinu, en vegna áreiðanleika heimildana ákváðum við samt að setja þetta skúbb hingað inn.

Ljóst er að ef af þessu yrði væri Grindavík komið með eitthvert öflugasta þjálfarateymi landsins og því væntanlega í góðum málum fyrir næsta sumar. Keflvíkingar vilja líklega fyrir alla muni halda þjáfara sínum þar sem liðið náði ágætum árangri í deildinni og vann bikarkeppnina á sannfærandi hátt.

Slapp
banner