„Hver leikur sem við spilum núna er stórleikur," sagði Aron Bjarki Jósepsson varnarmaður KR í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í gær en liðið mætir Breiðabliki í Pepsi-deildinni á morgun.
„Þetta verður hörkuleikur gegn Blikum. Þetta eru tvö af fjórum bestu liðunum í deildinni sem eru að spila og þetta verður mjög skemmtilegur leikur held ég."
„Þetta verður hörkuleikur gegn Blikum. Þetta eru tvö af fjórum bestu liðunum í deildinni sem eru að spila og þetta verður mjög skemmtilegur leikur held ég."
Aron Bjarki hefur spilað í hægri bakverðinum hjá KR að undanförnu. „Þetta er mjög skemmtilegt. Ég fæ að fara framar á völlinn og gefa boltann fyrir sem er skemmtilegt,"
„Ég er búinn að Googla gömul YouTube myndbönd af Sissa Júll (Sigþóri Júlíussyni) til að læra eitthvað."
Sjá einnig:
Hlustaðu á útvarpsþáttinn í heild sinni
Athugasemdir