Tottenham hefur staðfest söluna á rúmenska varnarmanninum Vlad Chiriches til Napoli.
Myndir sáust af leikmanninum á Ítalíu fyrr í vikunni og gekkst hann undir læknisskoðun áður en hann samdi við Napoli.
Myndir sáust af leikmanninum á Ítalíu fyrr í vikunni og gekkst hann undir læknisskoðun áður en hann samdi við Napoli.
Tottenham hefur nú staðfest félagaskipti Chiriches, sem lék 43 leiki fyrir félagið eftir að hafa komið frá Steaua Búkarest árið 2013.
Lundúnaliðið hafði þegar fengið þá Toby Alderweireld og Kevin Wimmer í sínar raðir og var því ljóst að Chiriches væri ekki lengur inni í myndinni frekar en Younes Kaboul, sem fór til Sunderland fyrr í sumar.
Tottenham óskaði Chiriches alls hins besta í stuttri yfirlýsingu á heimasíðu sinni.
Athugasemdir