Tor Andre Skimmeland hefur fengið félagaskipti í Breiðablik.
Skimmeland er 19 ára Norðmaður frá Haugesund sem getur leikið sem sóknarmiðjumaður eða vinstri kantmaður.
Hann kom í Kópavoginn í síðustu viku til reynslu og hefur náð að heilla forráðamenn Kópavogsliðsins.
Skimmeland hefur leikið fyrir yngri landslið Noregs, þar á meðal fyrir U19 landsliðið.
Blikar hafa verið að styrkja sóknarleik sinn en nýlega gekk Jonathan Glenn í raðir félagsins frá ÍBV.
Breiðablik situr í fjórða sæti Pepsi-deildarinnar en stöðuna má sjá hér að neðan.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir