Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 01. ágúst 2015 10:30
Stefán Haukur
Lambert skoraði tvö í fyrsta leik fyrir West Brom
Rickie Lambert byrjar vel.
Rickie Lambert byrjar vel.
Mynd: Getty Images
Rickie Lambert, fyrrum leikmaður Liverpool, byrjar með látum hjá West Bromwich Albion en hann skoraði tvö mörk í 0-4 sigri liðsins á Bristol Rovers.

Lambert gekk til liðs við West Brom í gær en hann var ekki lengi að stimpla sig inn .

Fyrsta mark Lambert kom eftir 23 mínútur þegar hann skoraði af löngu færi en boltinn fór af varnarmanni Bristol og í netið.

Það seinna kom eftir frábæra sendingu frá James McClean en Lambert skallaði boltann í netið.

Lambert spilaði 25 leiki fyrir Liverpool en honum tókst einungis að skora 2 mörk í þeim.
Athugasemdir
banner
banner