Roberto Martinez, þjálfari Everton segir að Gerard Deulofeu minu að öllum líkindum missa af fyrsta leik liðsins í ensku úrvalsdeidinni.
Vængmaðurinn kom frá Barcelona í sumar á 4,2 milljónir punda en hann var á láni hjá liðinu tímabilið 2013/2014.
Hinn 21 árs gamli Spánverji varð fyrir meiðslunum er liðið fór í æfingarferð í Asíu í síðasta mánuði en Martinez heldur að hann verði ekki lengi frá.
„Hann er nú þegar að vinna 60% svo ég býst ekki við að hann verði lengi í burtu. En hann mun missa af fyrsta leiknum," sagði Martinez.
Athugasemdir