Pep Guardiola hefur mikla trú á að Bastian Schweinsteiger muni standa sig mjög vel hjá Manchester United nái hann að vera laus við meðsli.
Þjóðverjinn fór til Old Trafford fyrir 14,4 milljónir punda eftir 13 ár hjá Bayern.
„Ég er algjörlega sannfærður um að hann muni gera mjög vel hjá Manchester United. Hann er frábær leikmaður, því miður var hann mikið meiddur á síðustu tveimur árum."
„Hann var aldrei í góðu líkamlegu ástandi en ef hann er í góðu ástandi þá er hann stjarna og mjög góður leikmaður," sagði Guardiola.
Athugasemdir