Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 04. ágúst 2015 10:38
Magnús Már Einarsson
Aron Jó á leið til Werder Bremen
Mynd: Getty Images
Hollenskir og þýskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Aron Jóhannsson, framherji AZ Alkmaar, sé á leið til Werder Bremen.

AZ Alkmaar hafnaði tilboði frá Werder Bremen í Aron í gær en nú eru félögin að ná saman.

„Undanfarið tvö og hált ár hefur hann bætt sig mikið. Það hefur alltaf verið draumur hjá Aroni að spila í þýsku Bundesligunni. Werder er auðvitað félag með mikla hefð," sagði Magnús Agnar Magnússon umboðsmaður Arons við fjölmiðla í Hollandi.

Aron ólst upp hjá Fjölni en hann fór til AGF árið 2010 áður en AZ Alkmaar keypti hann árið 2013.

Werder Bremen mætir Schalke í fyrstu umferðinni í þýsku Bundesligunni um aðra helgi.
Athugasemdir
banner
banner
banner