Varnarmiðjumaðurinn Sergio Molina er orðinn leikmaður Stoke City en hann skrifaði undir þriggja ára samning.
Þessi 19 ára leikmaður kemur upp úr unglingastarfi Real Madrid en hann hefur verið hjá félaginu frá níu ára aldri.
Þessi 19 ára leikmaður kemur upp úr unglingastarfi Real Madrid en hann hefur verið hjá félaginu frá níu ára aldri.
Hann hefur verið fyrirliði í yngri liðum Real Madrid, allt frá U10 - U19 liðum félagsins.
Molina lék með Real í Meistaradeild yngri liða á síðasta tímabili en til að byrja með verður hann í U21-liði Stoke.
Athugasemdir