Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 04. ágúst 2015 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: 101gg 
Di Maria hlakkar til að spila með PSG í Meistaradeildinni
Mynd: Getty Images
Angel di Maria er á leið til PSG í Frakklandi og er í þessum töluðu orðum í Frakklandi þar sem hann lauk læknisskoðun í dag og mun ganga opinberlega til liðs við félagið á næstu dögum.

Kaupverðið er talið nema um 45 milljónum punda en Di Maria kom til Manchester United fyrir ári síðan og kostaði þá rétt tæpar 60 milljónir.

„Ég er mjög ánægður að ganga til liðs við PSG. Það sem ég veit um PSG er að þetta er liðið sem vann alla mögulega titla í Frakklandi á síðasta tímabili," sagði Di Maria við BeIN Sports.

„Ég vil komast lengra en í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar. Ég ætla að gera mitt allra besta fyrir félagið og við ætlum að reyna að komast eins langt og hægt er í Meistaradeildinni."

Di Maria byrjaði síðasta tímabil vel með Man Utd en missti fljótt móðinn og átti erfitt með að komast í byrjunarlið Rauðu djöflanna síðustu þrjá mánuði tímabilsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner