„Við vorum bara þungir á okkur, þetta er búið að vera erfiður júlí og við höfum þurft að fresta leikjum. Þessi leikur í dag var settur á í óþökk okkar," sagði Bjarni Jóhannsson þjálfari KA eftir að hans menn töpuðu 2-0 gegn Haukum í 1.deild karla nú í kvöld.
Lestu um leikinn: Haukar 2 - 1 KA
Þetta var nánast síðasti séns KA til að stimpla sig í baráttu um sæti í Pepsi deildinni að ári og Bjarni áttar sig alveg á því.
„Þú þarft ekki að vera sleipur í stærðfræði til að sjá það, ég held að það sé orðið svolítið langsótt."
Aðspurður hvort hann ætli sér að klára tímabilið með KA sagði Bjarni,
„Já það er algjörlega stefnan, en ég ræð ekki för minni þarna, það er annar að taka ákvörðun um það."
„Við skulum láta nóttina bíða og allt það en auðvitað er maður sár, fyrst og fremst er þetta dæmt á sigrum og stigum og þú verður bara að standa og falla með því."
Athugasemdir