Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 24. september 2015 18:45
Fótbolti.net
Draumaliðsdeild Fótbolta.net og Brammer - Markaðurinn opinn
Mynd: Fótbolti.net
Gulli er stigahæsti markvörðurinn.
Gulli er stigahæsti markvörðurinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markaðurinn í Draumaliðsdeild Brammer og Fótbolta.net er opinn fyrir 21. umferðina sem er á dagskrá á sunnudag.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Hægt er að kaupa og selja leikmenn ótakmarkað og gera breytingar á liðinu áður en leikmannaglugginn lokar klukkan 13:00 á laugardag, klukkutíma fyrir fyrsta leik í 21. umferð.

Leikirnir í 21. umferð á laugardag:
14:00 Stjarnan-Keflavík (Samsung völlurinn)
14:00 Leiknir R.-KR (Leiknisvöllur)
14:00 Breiðablik-ÍBV (Kópavogsvöllur)
14:00 Víkingur R.-Fylkir (Víkingsvöllur)
14:00 ÍA-Valur (Norðurálsvöllurinn)
14:00 FH-Fjölnir (Kaplakrikavöllur)

Að sjálfsögðu er líka hægt að skrá ný lið til leiks!

Leikurinn í stuttu máli
Þú færð 100 milljónir króna til að kaupa 15 leikmenn úr Pepsi-deildinni. Leikmennirnir fá síðan stig fyrir frammistöðu sína á vellinum en mörg atriði eru tekin inn í reikninginn í stigagjöfinni.

Á síðunni er einnig boðið upp á sérstakar einkadeildir þar sem hægt er að keppa við vini og félaga og bera saman árangurinn.

Taktu þátt og sýndu snilli þína í að velja lið, þátttaka er að sjálfsögðu ókeypis!

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Draumaliðsdeild Brammer er opinber samstarfsaðili Íslensks Toppfótbolta og er starfræktur með leyfi hans.

Brammer, styrktaraðili leiksins í ár, er helsti dreifingaraðili Evrópu innan viðhalds-, viðgerða- og varahluta, og tengdrar þjónustu. Fyrirtækið býður afar breitt vöruúrval, þar á meðal: Legur, drifbúnað, loft- og vökvakerfi, verkfæri og öryggis- og heilsuvörur.



Athugasemdir
banner
banner
banner