Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 29. ágúst 2015 20:41
Elvar Geir Magnússon
Ítalía: Tveir opnuðu markareikningana í sigri AC Milan
Luiz Adriano skoraði.
Luiz Adriano skoraði.
Mynd: Getty Images
Brasilíumaðurinn Luiz Adriano var hetja AC Milan en hann skoraði sigurmark liðsins gegn Empoli í ítölsku A-deildinni í kvöld. Þetta var hans fyrsta mark í deildinni en hann kom frá Shaktar Donetsk

Fyrr í leiknum hafði Kólumbíumaðurinn Carlos Bacca, sem kom frá Sevilla, einnig opnað sinn markareikning.

AC Milan hafði tapað í fyrstu umferð en Empoli er enn stigalaust. Fyrr í kvöld vann Sassuolo sigur á stigalausu liði Bologna. Sassuolo hefur unnið báða leiki sína.

Milan 2 - 1 Empoli
1-0 Carlos Bacca ('16 )
1-1 Riccardo Saponara ('19 )
2-1 Luiz Adriano ('69 )

Bologna 0 - 1 Sassuolo
0-1 Antonio Floro Flores ('86 )
Athugasemdir
banner
banner
banner