Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 30. ágúst 2015 07:30
Arnar Geir Halldórsson
Neymar: Ég er ekki að fara neitt
Neymar líður vel í Barcelona
Neymar líður vel í Barcelona
Mynd: Getty Images
Brasilíski snillingurinn Neymar er ekki á förum frá Barcelona en þetta staðfesti hann eftir leik liðsins gegn Malaga í La Liga í gær.

Kappinn hefur verið orðaður við Man Utd upp á síðkastið og hefur enska pressan sagt að félagið sé tilbúið að punga út 240 milljónum punda fyrir Neymar.

Neymar gefur lítið fyrir þessar sögusagnir og hefur engan áhuga á að yfirgefa Evrópumeistarana.

„Börsungar geta verið rólegir. Ég er ekki að fara neitt. Þegar ég heyri svona hluti hugsa ég ekkert um þá. Ég er mjög ánægður hjá Barca".

„Við getum átt frábært tímabil. Ég veit ekki hvort við skorum jafnmörg mörk og í fyrra en við munum reyna það. Við viljum bæta við fleiri titlum",
sagði Neymar.

Athugasemdir
banner
banner
banner