Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 02. september 2015 21:30
Arnar Geir Halldórsson
Heimild: Liverpool 
Allan til Liverpool - Lánaður til Finnlands (Staðfest)
Allan
Allan
Mynd: Liverpool
Liverpool hefur fest kaup á ungum Brasilíumanni að nafni Allan.

Þessi 18 ára gamli leikmaður æfði með Liverpool í sumar og spilaði nokkra æfingaleiki með liðinu.

Hann kemur til liðsins frá Internacional í heimalandinu en verður lánaður til finnska úrvalsdeildarliðsins SJK Seinajoen til áramóta.

Kaupverðið er talið vera um 500 þúsund pund.

Þessi sóknarsinnaði miðjumaður er fjórði Brasilíumaðurinn í hópi Liverpool en þeir Lucas Leiva, Coutinho og Roberto Firmino eru fyrir.
Athugasemdir
banner
banner
banner