Arjen Robben verður fjarri góðu gamni á sunnudag þegar Holland leikur gegn Tyrklandi í undankeppni EM.
Robben fór meiddur af velli eftir hálftíma leik í gær þegar Holland tapaði 1-0 fyrir Íslandi og verður líklega frá keppni í fjórar vikur.
Jeremain Lens, framherji Sunderland, hefur verið kallaður inn í landsliðshópinn í stað Robben.
Robben var gerður að fyrirliða fyrr í vikunni og verður spennandi að sjá hver verður með bandið í Tyrklandi á sunnudag þar sem fyrrum fyrirliðinn, Robin van Persie, sat allan tímann á bekknum í gær.
Holland er með 10 stig í 3.sæti A-riðils en Tyrkir hafa stigi minna í fjórða sætinu eftir 1-1 jafntefli gegn Lettlandi í gær.
Arjen #Robben will be out for four weeks after picking up an injury on international duty. #GetwellsoonArjen pic.twitter.com/RmhVTBq19z
— FC Bayern English (@FCBayernEN) September 4, 2015
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir