Tvisvar í vikusýnir nýr leikmaður á sér hina hliðina hér á Fótbolti.net. Að þessu sinni er það Eyjólfur Héðinsson sem er 19 ára leikmaður hjá Fylki. Hann var áður hjá ÍR en undanfarin tvö ár hefur hann leikið í Árbænum. Á nýliðnu tímabili lék hann 14 leiki með Fylki í efstu deild og skoraði eitt mark en það gerði hann með skalla gegn Keflavík.
Eyjólfur á fjölmarga leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands og hefur farið víða út til reynslu, m.a. hjá Stoke og Ipswich. Þessa stundina er hann staddur hjá Lokeren í Belgíu og mun æfa fram í næsta mánuð með liðinu auk þess að spila með unglingaliðinu og varaliðinu. Hann gaf sér þó tíma til að svara spurningum okkar.
Fullt nafn: Eyjólfur Héðinsson.
Gælunafn: Snákurinn, Naðran, Mömmustrákurinn, Krulli.
Aldur: 19 ára.
Giftur/sambúð: Ég á kærustu.
Börn: Nei, mér finnst börn leiðinleg.
Hvað eldaðir þú síðast? Setti Nesquick og mjólk í glas og hrærði.
Hvað vilt þú fá á pizzuna þína? Pepperoni og lauk á helminginn og pepperoni og sveppi á hinn helminginn.
Hvernig gemsa áttu? Nokia.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Allt sem Tvíhöfði kemur nálægt.
Besta bíómyndin? Die Hard-myndirnar, Sódóma Reykjavík og líka Pulp Fiction og Kill Bill.
Hvaða tónlist hlustar þú á? Það fer bara eftir því hvernig týpa ég vil vera. Ef ég vill vera harður og að fólk taki mig alvarlega þá er það Deftones og Nirvana og slíkt. Svo á ég það líka til að vera mjúkur og þá vill maður hlusta á eitthvað rólegt, þá er það Elton John eða annað kerlingavæl. Nokkuð breiður tónlistarsmekkur.
Uppáhaldsútvarpsstöð? X-ið á morgnana, og svo mýkist maður með deginum og endar á kvöldin í Létt 96,7
Uppáhaldsdrykkur? Vatn.
Uppáhaldsvefsíða? Svarið við þessari spurningu hefur verið ritskoðað.
Ertu hjátrúarfullur fyrir leiki (ef já, hvernig þá?)? Það er voða lítið, en banani og Powerade er skylda fyrir hvurn leik. Svo kíki ég alltaf í spegilinn áður en ég labba út til að tékka hvort “lookið” sé ekki í lagi og það er það nú yfirleitt.
Hvernig er best að pirra andstæðinginn? Sofa hjá mömmu hans.
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? ÍA, Keflavík og Grindavík. Ég er einn af þeim sem finnst ekkert spes að spila í roki.
Hvert var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Hugh Hefner, Ron Jeremy og Fjölnir Þorgeirsson.
Erfiðasti andstæðingur? Ég sjálfur þegar ég er í óstuði.
EKKI erfiðasti andstæðingur? Allir, þegar ég er í stuði.
Besti samherjinn? 84’ og 85’ árgangarnir í ÍR, unnum marga glæsta sigra.
Sætasti sigurinn? Þegar ég vann á Lengjunni í fyrra. Ég gerði jafntefli á körfuboltaleik en á þessum tíma var ég í miklum fjárhagsörðugleikum og með skuldir út um allan bæ.
Mestu vonbrigði? Þegar systir mín sagði mér að jólasveinninn væri ekki til, ég var fimm ára.
Uppáhalds lið í enska boltanum? Liverpool.
Uppáhaldsknattspyrnumaður? Michael Ballack og Ronaldinho.
Besti íslenski knattspyrnumaðurinn fyrr og síðar? Eiður Smári Gudjohnsen.
Efnilegasti knattspyrnumaður landsins? Theodór Elmar Bjarnason
Fallegasti knattspyrnumaðurinn í deildinni? Vísa þessari spurningu á bug.
Fallegasta knattspyrnukonan? Jóhanna Lára Brynjólfsdóttir, VAL.
Grófasti leikmaður deildarinnar? Ekki hugmynd
Besti íþróttafréttamaðurinn? Guðjón Guðmundsson og Logi Ólafsson saman.
EKKI besti íþróttafréttamaðurinn? Allt þetta RÚV-pakk mætti alveg fara að snúa sér að einhverju öðru.
Hver er mesti höstlerinn í liðinu? Ja, einn af eldri, örvfættu mönnunum í liðinu sem flestir vilja meina að sé mesti höstlerinn í liðinu fór heim með bekkjarsystur minni um daginn. Annars er þjálfarinn alltaf að segja einhverjar svaka sögur af sjálfum sér, spurning hvað maður tekur mikið mark á þeim.
Hefurðu skorað sjálfsmark? Já, einu sinni en það er langt síðan.
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik:
Vorum að fara að keppa á Essó-mótinu í 5. flokki og fyrsta kvöldið var þjálfarinn að segja í hvaða liði hver leikmaður yrði, A,B,C eða D-liði. Þá var gaur að æfa sem hét Ari og var á eldra ári, ekkert sérstaklega góður.
Ég vitna bara beint í þjálfarann: “Ja, ég hef ákveðið að eldra árið verði með A og B liðunum og yngra árið með C og D liðunum, nema Ari hann verður í D-liði”. Þjálfarinn fór ekkert sérstaklega fínt í hlutina þarna, en Ari hótaði að fara heim af mótinu ef hann yrði í D-liði og að lokum ákvað þjálfarinn að setja hann í B-lið.
Svo vorum við í einhverju ferðalagi einhverntímann í yngri flokkunum og eldri bróður eins stráksins, Tómas Oddur Hrafnsson, var með í för en hann er nokkuð hnyttinn. Ég og félagi minn báðum hann um að segja okkur brandara og hefur þessi brandari orðið að klassík síðan og er mikið hlegið að honum ef hann er rifjaður upp:
Einu sinni var ormafjölskylda sem átti heima nálægt á. Svo einhvern tíma var ormastrákurinn að leita að ormapabbanum sínum og spurði ormamömmu sínu: “Hey, hvar er ormapabbi?” Og þá svaraði ormamamman: “Ja, hann fór niður að á að veiða.”
Spilar þú Championship Manager tölvuleikinn? Ég var fíkill fyrir nokkrum árum, hætti svo en er byrjaður að fikta við þetta aðeins aftur.
Hvenar lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki? Árið 2001 með ÍR á móti Leiftri.
Hvernig finnst þér Fótbolti.net? Skemmtileg
Kíkir þú oft á Fótbolti.net? Já, svona annan hvorn dag.
Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Að dómarar yrðu skyldugir til þess að vera með smá vit í kollinum til þess að fá að dæma. Alltof margir vitleysingar að störfum í þessum bransa.
Hvern vildir þú sjá á sviði (tónleikum)? Andra Fannar Ottósson og Bjarna Þór Pétursson, fékk að heyra smá tóndæmi frá þeim úr lögum á borð við “Drakúla” og “Frjálshyggjumaður” og ég hef sjaldan dansað jafn mikið.
Hvað finnst þér leiðinlegast að gera á æfingu? Finna stæði upp á Fylkisvelli.
Hver er frægasta persónan sem þú ert með í farsímanum þínum? Elwar Geir Magnússon, ritstjóri fotbolti.net
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Sturturnar í Fylkisheimili þegar þar er fjölmennt eftir æfingar.
Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna? Fer eftir þolinmæði mömmu sem vekur mig alltaf.
Hver er uppáhaldsÍÞRÓTTAMAÐURINN þinn? Anna Kournikova.
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum? Já, eins og tími gefst til.
Hver er uppáhalds platan þín? Hemmi Gunn – Frískur og fjörugur.
Hvenær borgaðir þú þig síðast inn á knattspyrnuleik? Ísland - Ítalía um daginn.
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú? Adidas.
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla? Einkunum




