Brendan Rodgers var rekinn úr starfi knattspyrnustjóra Liverpool í dag eftir 1-1 jafntefli liðsins gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni.
Liverpool keypti fjölmarga leikmenn í sumar eftir mikil vonbrigði á síðustu leiktíð en liðið hefur þó alls ekki byrjað þetta tímabil vel. Tveir 1-0 sigrar í upphafi móts og jafntefli gegn Arsenal gáfu jákvæð merki en síðan þá hefur spilamennskan ekki verið upp á marga fiska frekar en úrslitin.
Liverpool keypti fjölmarga leikmenn í sumar eftir mikil vonbrigði á síðustu leiktíð en liðið hefur þó alls ekki byrjað þetta tímabil vel. Tveir 1-0 sigrar í upphafi móts og jafntefli gegn Arsenal gáfu jákvæð merki en síðan þá hefur spilamennskan ekki verið upp á marga fiska frekar en úrslitin.
Niðurstaðan er sú að Rodgers fékk að fjúka og að sjálfsögðu eru strax farnar af stað getgátur um það hver gæti orðið arftaki hans á Anfield.
The Mirror tók saman fimm knattspyrnustjóra sem eru hvað líklegastir til að taka við stjórnartaumunum á Anfield.
Ronald Koeman - Stuðull 20/1: Koeman hefur verið að gera fína hluti sem stjóri Southampton og býr yfir mikilli reynslu. Hefur þrisvar orðið hollenskur meistari og einu sinni spænskur bikarmeistari á þjálfaraferlinum.
Walter Mazzarri - Stuðull 18/1: Gerði flotta hluti með Napoli á árunum 2009 til 2013 og gerði liðið að ítölskum bikarmeisturum. Hefur einnig stýrt Inter og Sampdoria en gerði engar rósir hjá þeim fyrrnefndu.
Frank de Boer - Stuðull 16/1: Átti frábæran feril sem leikmaður hjá bæði Ajax og Barcelona og hefur fjórum sinnum gert þá fyrrnefndu að Hollandsmeisturum. Það þykir einungis tímaspursmál hvenær hann fær stærra starf. Er tíminn kominn?
Carlo Ancelotti - Stuðull 5/2: Ítalinn þykir næst-líklegastur til að taka við Liverpool. Yrði gríðarlegur fengur fyrir félagið, enda magnaður sigurvegari. Hefur þrisvar unnið Meistaradeildina, HM félagsliða tvisvar, ítölsku deildina, frönsku deildina, ensku úrvalsdeildina og enska bikarinn á þjálfaraferlinum.
Jurgen Klopp - Stuðull 8/11: Þjóðverjinn er talinn langlíklegastur til að taka við Liverpool. Skaut Dortmund upp á stjörnuhimininn og gerði liðið tvisvar að þýskum meisturum og kom þeim í úrslit Meistaradeildarinnar. Varð einnig þýskur bikarmeistari, en átti hins vegar arfaslakt síðasta tímabil hjá Dortmund. Er þó óneitanlega spennandi kostur. Sjáum við hann mæta á Anfield?
Athugasemdir