Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
banner
   þri 06. október 2015 12:08
Magnús Már Einarsson
Kári um Zlatan og Ronaldo: Veit ekki hvort þeir hafi verið í öðrum gír
Icelandair
Frá æfingu Íslands í dag.
Frá æfingu Íslands í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kári Árnason, landsliðsmaður, hefur verið á fullu í Meistaradeildinni með sænska liðinu Malmö

„Úrslitin hafa ekki verið upp á marga fiska en það var fyrirséð. Við stefndum á 3. sætið í riðlinum og komast í Evrópudeildina. Það er ekki hægt að ætlast til meira þegar þú ert með PSG og Real Madrid í riðli," sagði Kári en Malmö er einnig með Shakhtar Donetsk í riðli.

Kári hefur átt í höggi við stórstjörnur eins og Cristiano Ronaldo og Zlatan Ibrahimovic undanfarnar vikur.

„Ég veit ekki hvort þeir hafi verið í öðrum gír. Maður hafði ágætis stjórn á þeim framan af en síðan geta þeir kveikt í einhverjum extra power og þá er lítið hægt að gera," sagði Kári. „Það er mikið sjálfstraust hjá þessum gæum og þeir sýna litla virðingu."

Ísland leikur við Lettland í undankeppni EM á laugardag en sætið í lokakeppninni er nú þegar tryggt.

„Þetta er snilld. Við erum búnir að tryggja þetta en við ætlum að klára þetta í fyrsta sæti. Við skuldum okkur sjálfum og þjóðinni það. Eftir góða spilamennsku væri grátlegt að tapa fyrsta sætinu. Við ætlum að vinna báða þessa leiki."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner