Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 07. október 2015 07:00
Elvar Geir Magnússon
Aðstoða fótboltamenn að komast á styrk í Bandaríkjunum
Brynjar Benediktsson.
Brynjar Benediktsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Soccer and Education USA er nýtt íslenskt fyrirtæki sem aðstoðar knattspyrnumenn að komast á skólastyrk í Bandaríkjunum.

Stofnendur fyrirtækisins eru Brynjar Benediktsson og Jóna Kristín Hauksdóttir, en þau spiluðu bæði með Clemson University í Bandaríkjunum á skólastyrk.

Clemson spilar í sterkustu deild Bandaríkjanna, en hún nefnist ACC.

Þau hafa því mikla reynslu þegar kemur að háskólaboltanum og hafa myndað sterk tengsl við bæði þjálfara og leikmenn í Bandaríkjunum.

Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu fyrirtækisins:
soccerandeducationusa.com.

Eða með því að senda línu á [email protected].

Athugasemdir
banner
banner