Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   mið 07. október 2015 09:00
Alexander Freyr Tamimi
Harpa Þorsteins: Rússagrýlan er orðin þreytt
Harpa Þorsteins hlakkar til.
Harpa Þorsteins hlakkar til.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Harpa Þorsteinsdóttir, framherji Stjörnunnar, er spennt fyrir leik liðsins gegn rússneska liðinu WFC Zvezda 2005 í 32-liða úrslitum Meistaradeildar kvenna í kvöld.

Stjarnan mætir í kvöld sama liði og sló þær út í fyrra, en Zvezda vann fyrri leikinn í Garðabæ 5-2. Nú fá Stjörnustúlkur hins vegar tækifæri til að hefna sín á Samsung-vellinum, en leikurinn hefst klukkan 19:00.

„Þetta eru búnir að vera spennandi dagar eftir mót að bíða eftir þessum leik. Manni fannst þetta vera rosalega langur tími en svo komu landsliðsverkefni og annað í þetta, þannig þetta er ekki búið að vera neitt hrikalegt," sagði Harpa við Fótbolta.net.

„Þær eru með áþekkt lið og við líka þannig við vitum nokkurn veginn við hverju á að búast. Við lágum fyrir þeim 5-2 á heimavelli síðast en það var samt 2-2 á 90. mínútu eða eitthvað, þannig að tölurnar segja ekki hvað við áttum mikið í þeim leik. Við erum með sterkara lið núna ef eitthvað er, þannig þetta verður mjög spennandi viðtal. Þessi Rússagrýla er orðin mjög þreytt."
Athugasemdir
banner
banner
banner