Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 08. október 2015 19:43
Magnús Már Einarsson
Böddi Löpp: Ég er jafn herðabreiður og Mila Kunis
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Böðvar Böðvarsson, leikmaður U21 árs landsliðsins, var tekinn í lyfjapróf eftir 1-0 sigurinn á Úkraínu í kvöld.

Böðvar, Eeða Böddi löpp, hefur áður farið í lyfjapróf á þessu ári.

Hann sló á létta strengi á Twitter eftir lyfjaprófið í dag og sagðist vera jafn herðabreiður og leikkonan Mila Kunis.

„Ég er 32 kíló og jafn herðabreiður og Mila Kunis. Að ég sé sendur í lyfjapróf tvisvar á sama árinu er athyglisvert," sagði Böðvar á Twitter.

Böðvar og félagar í U21 árs landsliðinu er með tíu stig eftir fjóra leiki eftir sigurinn á Úkraínu í kvöld.

Þeir halda ferðalagi sínu áfram á morgun þegar þeir fara til Skotlands fyrir leik þar í landi á þriðjudaginn.



Athugasemdir
banner
banner
banner