Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 09. október 2015 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Vefsíða Þórs 
Tvíburar frá Dalvík æfa með Hannover
Mynd: Dalvík
Nökkvi Þeyr og Þorri Mar Þórissynir eru tvíburar frá Dalvík sem skrifuðu undir þriggja ára samning við Þór í sumar.

Tvíburarnir eru ekki nema sextán ára gamlir og urðu bikarmeistarar með 3. flokki Þórs eftir sigur á KA í úrslitaleiknum.

Nökkvi og Þorri fá að æfa með unglingaliði Hannover næstu tvær vikurnar þar sem þeir verða vegnir og metnir.

Tvíburarnir ólust upp hjá Dalvík og skiptu yfir í Þór árið 2011 en fóru aftur til Dalvíkur ári síðar. Það var svo í fyrra sem þeir gengu aftur til liðs við unglingastarf Þórsara.

Meistaraflokkur Þórs endaði í fjórða sæti 1. deildarinnar á nýliðnu tímabili þar sem liðið var aðeins sex stigum frá því að komast upp í Pepsi-deildina.
Athugasemdir
banner
banner