mán 25. október 2004 15:26
Magnús Már Einarsson
Fjögur lið vilja fá Þórhall Dan
Mynd: fylkir.com
Eins og við greindum frá fyrr í dag þá er Þórhallur Dan Jóhannsson á förum frá Fylki en hann hefur leikið með Árbæjarliðinu frá 1999. Alls hafa fjögur lið haft samband við Þórhall og vilja fá hann til liðs við sig, þrjú þeirra eru úr fyrstu deild og eitt úr efstu deild en þetta staðfesti hann við Fótbolti.net í dag.

Þórhallur sem að verður 32 ára í desember á tvo A-landsleiki að baki fyrir Íslands hönd en auk þess að hafa leikið í Danmörku með Vejle hefur Þórhallur leikið með KR hér á landi. Þórhallur var reyndar fyrst sóknarmaður en er nú kominn í vörnina.

Sjá einnig:
Hin Hliðin á Þórhalli (Maí 2002)
Sævar Þór og Þórhallur Dan hættir hjá Fylki
Slapp
banner