Bjarni Þórður semur við Fylki
Markvörðurinn ungi Bjarni Þórður Halldórsson skrifaði í kvöld undir nýjan þriggja ára samning við félag sitt, Fylki. Fyrri samningur Bjarna átti að renna út í lok árs 2006 en nú hefur það verið framlengt um eitt ár. Bjarni er 21 árs gamall markvörður U-21 árs landsliðs Íslands.
Hann stóð sig frábærlega í marki Fylkis í efstu deild karla í sumar er hann spilaði alla leiki Fylkis í deildinni en hafði spilað sinn fyrsta leik í efstu deild í júlí í fyrra.
Bjarni var valinn besti markvörður efstu deildar á lokahófi knattspyrnumanna í byrjun mánaðarins og er vel að þeim titli kominn.



