þri 26. október 2004 19:36
Hafliði Breiðfjörð
Fylkismenn sendu frá sér yfirlýsingu í dag
Mynd: Merki
Ásgeir Ásgeirsson formaður meistaraflokksráðs Fylkis sendi í dag frá sér yfirlýsingu þar sem hann svarar til um brotthvarf tveggja lykilmanna liðsins frá síðustu leiktíð, þeirra Þórhalls Dan Jóhannessonar og Sævars Þórs Gíslasonar. Þar lýsir Ásgeir því að félagið hafi ekki eins mikla peninga til umráða og oft áður og útskýrir það og einnig hvernig staðið var að samningamálum við Sævar og Þórhall. Greinargerðina má sjá í heild sinni hér að neðan en hún er fengin af vefsíðu félagsins, Fylkir.com.

Undanfarna daga hafa staðið yfir samningaviðræður við þá leikmenn sem hafa lausa samninga.

Þegar lagt var af stað í samningaviðræður var ljóst að uppgjör s.l. sumars gaf til kynna minna svigrúm til hækkunar samninga en oft áður. Ástæðan er m.a. minnkandi aðsókn á heimaleiki félagsins um 36% og eins gengi okkar liðs þ.e. í Íslandsmóti og bikarkeppni KSÍ. Það er einnig ljóst að við tökum ekki þátt í Evrópukeppninni að ári og það gerir minni tekjur fyrir félagið. Þetta þýðir einnig að erfiðara er afla tekna fyrir klúbbinn.

Að gefnu tilefni vegna viðtala við Þórhall og Sævar Þór í dagblöðum dagsins vil ég vekja athygli á að varðandi Sævar Þór var honum boðinn nýr samningur á svipuðum nótum og sá sem hann hafði. Hann fékk samninginn í hendur í síðustu viku og var ákveðið að hittast og ræða málin um hádegisbil á laugardag. Á þeim fundi gerir Sævar kröfu um að félagið útvegi honum vinnu í Reykjavík og það sett í samninginn. Stjórn meistaraflokksráðs neitaði að setja það í samninginn en bauð honum aðstoð í atvinnuleit án skuldbindinga.

Einnig var tekið fram að frekar hækkun á þeim samningi sem lá fyrir var ekki til umræðu því við töldum okkur hafa gengið eins langt og félagið getur staðið við. Sævar sagðist sáttur við þennan samning nema vildi hliðra til greiðslufyrirkomulagi og það var samþykkt af hálfu stjórnar. Hann bað um frest til hádegis á sunnudag og vildi leggja málið fyrir fjölskyldu sína. Haft var samband við Sævar í tvígang á sunnudeginum án þess að fá niðurstöðu í málið. Um kvöldið hafði Sævar samband við mig þar sem hann sagðist treysta því að félagið aðstoðaði hann við að finna vinnu og fór fram á 25% hækkun á grunnlaun samningsins, þá mundi hann skrifa undir.

Ég undirstrikaði það við Sævar að við töldum okkur vera búna að teygja okkur í þá upphæð sem félagið réði við. Því svaraði Sævar að hlutirnir næðu þá ekki lengra og hafnaði samningum.

Hvað varðar Þórhall var honum boðið samningur í síðustu viku á sambærilegum nótum og hann hafði fyrir. Honum var jafnframt kynnt staða félagins og takmarkað svigrúm þess til frekari samningagerðar. Í framhaldinu var ákveðið að Þórhallur kæmi til fundar við stjórn meistaraflokksráðs sl. laugardag milli kl. 11:00 og 13:00. Þórhallur mætti ekki umræddan dag og lét ekkert af sér vita. Um kl. 17:00 sama dag náði ég í hann í síma og spurði af hverju hann hefði ekki mætt, svaraði hann því að hann hafi gleymt fundinum. Ég sagði honum að við legðum ríka áherslu á að klára samningana sem allra fyrst, í dag eða á morgun. Þórhallur sagðist ekki hafa tíma hvorki á laugar- eða sunnudag og var ákveðið að hittast kl. 17:00 á mánudag. Upp úr hádegi á mánudag hringdi Þórhallur í mig og vildi fá hreinskilin svör.

Hann sagði strax að hann gangi ekki að þessum samningi og hvort það þýddi eitthvað að ræða um hækkun á launalið hans. Ég svaraði því til að þetta væri það sem við gætum boðið upp á og hefðum ekki möguleika á frekari hækkun. Þórhallur svaraði að þá hafi hann enga ástæðu til að mæta á fund kl. 17:00. Með þessu svari taldi ég Þórhall ekki vilja ræða málið neitt frekar og við næðum ekki samkomulagi.

Með þessari grein vill ég vísa á bug mörgu af því sem kemur fram í dagblöðunum í dag.

Jafnframt vona ég með þessu innleggi að fólk skilji betur hvað er að gerast þegar samningar eru gerðir við leikmenn þar sem bæði hagsmunir og tilfinningar ráða ríkjum. Það var von okkar að það tækist að ná samningum við þessa tvo leikmenn en því miður tókst það ekki í þetta skiptið. Þessir leikmenn hafa verið lykilmenn í liðinu og vilji okkar var sá að þeir væru áfram sem Fylkismenn en það má vera ljóst að það þarf tvo til að samningar náist.

Almennt viljum við getað unnið þessi viðkvæmu mál í friði og síðan skýrt frá niðurstöðu þegar málum líkur án þess að ræða einstaka þætti hvers máls.

Í ljósi mjög villandi umfjöllunar í fjölmiðlum , teljum við þörf sé á að skýra okkar sýn á þessi mál eins og þau gengu fyrir sig, bæði vegna félagsins og hinna fjölmörgu stuðningsmanna.

Það má þó öllum vera ljóst að metnaður okkar er að vera meðal þeirra bestu og við munum mæta til leiks næsta tímabil með leikmannahóp sem á að geta barist á toppnum eins og undanfarin ár.

Með kærri kveðju,
Ásgeir Ásgeirsson
Formaður meistaraflokksráðs karla.

Slapp
banner
banner