mið 27. október 2004 07:01
Hafliði Breiðfjörð
Valur og Fram hafa rætt við Þórhall Dan
Mynd: fylkir.com
Þórhallur Dan Jóhannesson fyrrum leikmaður Fylkis mætti í viðtal í Olíssporti á Sýn í gærkvöld og svaraði þar bréfi Ásgeirs Ásgeirssonar formanns meistaraflokksráðs Fylkis sem við birtum hér á síðunni í gær. Þórhallur sagði að nýtt tilboð Fylkis til sín hafi hljóðað upp á 33% lægri laun en hann hafði haft á fyrra ári og því hafi hann ekki séð sér fært að taka. Hann sagði Ásgeir segja ósatt um að samningurinn byði upp á það sama og áður.

Þórhallur sagði að Þorlákur Árnason þjálfari félagsins hafi hringt í sig í ágúst og spurt hvort hann hefði áhuga á að leika áfram með félaginu. Hann sagðist hafa játað því og þá hafi Þorlákur sagt við sig að haft yrði samband við hann í næstu viku.

Það dróst hinsvegar fram í miðjan þennan mánuð. Með því að segja þetta sagðist Þórhallur vera að leggjast í sama sandkassaleik og Ásgeir er hann sagði í grein sinni að Þórhallur hafi skrópað á fund á laugardag.

Í viðtalinu í Olíssporti á Sýn sem Arnar Björnsson tók við Þórhall viðurkenndi leikmaðurinn svo að Valur og Fram hafi rætt við sig um að leika með sér næsta sumar en staðfesti einnig að FH hafi ekki rætt við sig.
Slapp
banner
banner