Í kvöld mætast Pólland og Ísland í vináttulandsleik í Varsjá en mikill áhugi er fyrir leiknum í landinu og fyrir löngu orðið uppselt.
Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson, ritstjórar Fótbolta.net, eru staddir í Varsjá og ræða um leikinn í nýjasta þætti Innkastsins. Hægt er að hlusta á umræðuna í spilaranum hér að ofan.
Spáð er í spilin fyrir leiknum í kvöld, rætt um pólska liðið, líklegt byrjunarlið Íslands, markmannsmálin og fleira.
Innkastið er nýr hljóðvarpsþáttur sem finna má á Fótbolta.net. Þar verður kafað aðeins dýpra í hlutina og rætt um fótbolta á mannamáli.
Athugasemdir