Sóknarmaðurinn Alfreð Finnbogason skoraði seinna mark íslenska landsliðsins í 4-2 tapinu gegn Póllandi í gærkvöldi. Alfreð byrjaði á bekknum en kom inn fyrir Kolbein Sigþórsson í fyrri hálfleik vegna meiðsla.
Alfreð slapp einn í gegn og kláraði af mikilli yfirvegun. Hann segir þetta mark hafa gert mikið fyrir sig.
Alfreð slapp einn í gegn og kláraði af mikilli yfirvegun. Hann segir þetta mark hafa gert mikið fyrir sig.
„Klárlega. Ég er framherji sem lifi á mörkum og það var mjög ljúft að skora. Þetta eru erfiðustu færin sem maður fær og margt sem fer í gegnum hugann á manni. Þetta snýst um að taka ákvörðun og standa fast á henni," segir Alfreð sem hefur fengið ótrúlega fáar spilmínútur með Olympiakos að undanförnu.
„Þeir geta ekki ignorað mig endalaust. Ég held áfram að setja pressu á þjálfarann. Október var nokkuð erfiður og maður fékk ekki svör við spurningum sem maður vildi fá. Staðan breyttist ekki neitt og það var pirrandi. Maður þarf að finna þetta andlega jafnvægi"
Alfreð segir að það hafi verið gott fyrir sig að komast frá Grikklandi í smá stund og fara í landsliðsverkefnið.
„Það er alltaf gaman að hitta vini sína og það var mjög gott fyrir mig að komast aðeins í burtu," segir Alfreð en viðtalið sem má heyra í spilaranum hér að ofan var í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag.
Athugasemdir