Levante 0 - 1 Real Betis
0-1 Ruben Castro ('4 )
Rautt spjald:Heiko Westermann, Betis ('79)
0-1 Ruben Castro ('4 )
Rautt spjald:Heiko Westermann, Betis ('79)
Þrettánda umferð spænsku úrvalsdeildarinnar hófst í kvöld þegar fallbaráttulið Levante fékk Real Betis í heimsókn.
Gestirnir hófu leikinn af krafti og kom Ruben Castro Real Betis yfir strax á fjórðu mínútu.
Fleiri urðu mörkin ekki og tókst gestunum að halda út þrátt fyrir að þurfa að leika síðustu tíu mínúturnar manni færri eftir að þýski varnarmaðurinn Heiko Westermann fékk rautt spjald.
Betis er þar með komið í níunda sæti en vandræði Levante halda áfram í næstneðsta sæti deildarinnar með aðeins tíu stig eftir þrettán leiki.
Athugasemdir