fös 27. nóvember 2015 21:42
Arnar Geir Halldórsson
Championship: Derby vann uppgjör toppliðanna
Á toppnum
Á toppnum
Mynd: Getty Images
Hull City 0 - 2 Derby County
0-1 Jacob Butterfield ('18 )
0-2 Jacob Butterfield ('34 )

Það var boðið upp á stórleik í ensku B-deildinni í kvöld þegar Hull fékk Derby County í heimsókn.

Hull var á toppnum fyrir leikinn en Derby átti möguleika að skjótast á toppinn með sigri í kvöld.

Þann möguleika nýttu þeir sér algjörlega þar sem Jacob Butterfield gerði bæði mörk leiksins í fyrri hálfleik.

Derby er því komið á toppinn, um stundarsakir hið minnsta, þar sem Brighton getur komist á toppinn um helgina.
Athugasemdir
banner
banner
banner