Massadio Haidara mun ekki leika með Newcastle næstu fjóra mánuði eða svo vegna hnémeiðsla.
Haidara hefur verið að vinna sig úr nárameiðslum sem hann hlaut í leik gegn Norwich í síðasta mánuði.
Hann var svo byrjaður að æfa með liðinu aftur en fékk högg á hnéið á æfingu í vikunni sem mun halda honum frá vellinum lengi.
Þessi 22 ára gamli Frakki mun halda til Frakklands á næstu dögum þar sem hann mun gangast undir aðgerð.
Athugasemdir