Tottenham 0 - 0 Chelsea
Tottenham og Chelsea gerðu markalaust jafntefli er þau mættust í risaslag sem var fyrsti leikur ofursunnudagsins.
Heimamenn héldu boltanum betur og áttu fleiri marktilraunir en bæði lið komust nálægt því að skora í leiknum.
Chelsea varðist vel í leiknum sem var ekkert sérlega fjörugur nema á köflum og tókst hvorugu liði að skora.
Þetta er sjöunda jafntefli Tottenham á tímabilinu og er liðið sem fyrr í fimmta sæti deildarinnar á meðan Chelsea er í því fjórtánda. Tíu stig skilja liðin að.
Athugasemdir