Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 01. desember 2015 09:32
Magnús Már Einarsson
Íslensk félög fá 78 milljónir frá KSÍ og UEFA
Úr leik í yngri flokkum.
Úr leik í yngri flokkum.
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
UEFA hefur ákveðið, líkt og áður, að hluti af þeim tekjum sem sambandið hafði af Meistaradeild UEFA (Champions League) 2014/2015 skuli renna til félaga í öllum aðildarlöndum UEFA til eflingar knattspyrnu barna- og unglinga.

Uppgjör vegna Meistaradeildarinnar sem lauk vorið 2015 hefur nú farið fram og fá íslensk félög um 40 milljónir króna í sinn hlut til barna- og unglingastarfs. Samkvæmt ákvörðun UEFA skulu öll framlög vegna Meistaradeildar UEFA til barna – og unglingastarfs renna til félaga í efstu deild. Framlag UEFA skiptist því á milli félaga í Pepsi-deild karla.

Stjórn KSÍ hefur samþykkt að leggja til um 38 milljónir króna til viðbótar til barna-og unglingastarfs sem skiptist á milli aðildarfélaga í öðrum deildum og utan deilda. Samþykkt stjórnar KSÍ byggir á samráði við aðildarfélögin og almennri sátt um skiptingu fjármunanna. Greiðslan til félaganna skal renna óskipt til eflingar knattspyrnu barna og unglinga frá yngstu iðkendum til og með 2. aldursflokks karla og kvenna. Samtals er því framlag til barna- og unglingastarfs fyrir árið 2015 áætlað um 78 milljónir króna.

Pepsi-deild Upphæð
Breiðablik 3.350.000 kr.
FH 3.350.000 kr.
Fjölnir 3.350.000 kr.
Fylkir 3.350.000 kr.
ÍA 3.350.000 kr.
ÍBV 3.350.000 kr.
Keflavík 3.350.000 kr.
KR 3.350.000 kr.
Leiknir R 3.350.000 kr.
Stjarnan 3.350.000 kr.
Valur 3.350.000 kr.
Víkingur R 3.350.000 kr.
Samtals 40.200.000 kr.

1. deild Upphæð
Fram 1.600.000 kr.
Grindavík 1.600.000 kr.
Grótta 1.600.000 kr.
Haukar 1.600.000 kr.
HK 1.600.000 kr.
KA 1.600.000 kr.
Selfoss 1.600.000 kr.
Víkingur Ó. 1.600.000 kr.
Þór 1.600.000 kr.
Þróttur R. 1.600.000 kr.
Samtals 16.000.000 kr.

2. deild Upphæð
Afturelding 1.100.000 kr.
Höttur 1.100.000 kr.
ÍR 1.100.000 kr.
KF 1.100.000 kr.
Leiknir F. 1.100.000 kr.
Sindri 1.100.000 kr.
Tindastóll 1.100.000 kr.
Ægir 1.100.000 kr.
Samtals 8.800.000 kr.

Önnur félög í deildarkeppni og sameiginleg lið í efri deildum - þátttaka í KSÍ mótum (bæði kyn) Upphæð
Austri 800.000 kr.
Álftanes 800.000 kr.
BÍ 800.000 kr.
Bolungarvík 800.000 kr.
Dalvík 800.000 kr.
Einherji 800.000 kr.
Hamar 800.000 kr.
Hvöt 800.000 kr.
Kormákur 800.000 kr.
Skallagrímur 800.000 kr.
Snæfell 800.000 kr.
Valur Rfj 800.000 kr.
Víðir 800.000 kr.
Þróttur Nes 800.000 kr.
Þróttur Vogum 800.000 kr.
12.000.000 kr.
Athugasemdir
banner
banner
banner