Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Enski boltinn - Heimskur og heimskari
Innkastið - Flugbraut fyrir meistarana og norðlensk neikvæðni
Niðurtalningin - Endar titillinn enn eitt árið á Hlíðarenda?
Niðurtalningin - Silfur er alls ekki nóg í Kópavoginum
Niðurtalningin - Dreymir um að endurtaka leikinn frá 2012
Útvarpsþátturinn - Brottvísun sem eyðilagði leikinn
Niðurtalningin - Skemmtikraftarnir úr Kaplakrika
Niðurtalningin - Nýjar áherslur og spennandi tímar í Garðabænum
Niðurtalningin - Nýir tímar í Laugardalnum
Niðurtalningin - Hamingjan er í Víkinni
Hugarburðarbolti Þáttur 12
Niðurtalningin - Andinn á Sauðárkróki er einstakur
Enski boltinn - Er titilbaráttan bara búin?
Innkastið - Víkingur vinnur leiki sem Valur vinnur ekki
Niðurtalningin - Ásþórsdætur í Fylkisspjalli
Niðurtalningin - Ekki afskrifa Keflvíkingana
Útvarpsþátturinn - Kraftur í KR og umdeild dómgæsla
Enski boltinn - El Meistaradeildarveisla
Innkastið - Fljúgandi start og fullar stúkur
Hugarburðarbolti Þáttur 11
   mán 21. desember 2015 16:30
Elvar Geir Magnússon
Úr fótboltanum í UFC - Fylgir Gunnari Nelson í bardaga
Gunnar Einarsson.
Gunnar Einarsson.
Mynd: Brandur
Fyrrum varnarjaxlinn Gunnar Einarsson lagði skóna á hilluna árið 2012 og eftir það hefur hann snúið sér að annarri íþrótt. Gunnar fór í stjórn bardagaíþrótta félagasins Mjölnis og hefur ferðast með nafna sínum Gunnari Nelson í bardaga í UFC.

Gunnar segir að nafni sinn sé orðinn gífurlega þekktur erlendis eftir þátttöku sína í UFC.

„Ég held að það sé einn knattspyrnumaður sem hefur náð sömu athygli úti á götu og það er Eiður Smári," sagði Gunnar.

Gunnar Einarsson spilaði með Leikni R. árið 2012 en þá var hann tímabundið þjálfari í síðustu þremur leikjum tímabilsins. Leiknir vann alla þrjá leikina og bjargaði sér frá falli á ævintýralegan hátt. Gunnar hafði þó ekki áhuga á að halda áfram í þjálfun.

„Mér gafst tækifæri á að vera áfram með Leikni en ég afþakkaði það. Það er mikið að gera hjá mér," sagði Gunnar.

Hér að ofan má hlusta á viðtalið við Gunnar í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner