Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 22. janúar 2016 10:15
Magnús Már Einarsson
Viðar Örn orðaður við AGF
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viðar Örn Kjartansson, framherji Jiangsu Suning, er orðaður við danska félagið AGF í Ekstra Bladet í dag.

Viðar Örn gæti verið á förum frá Jiangsu og hann hefur verið orðaður við mörg félög núna í janúar. Á dögunum var hann orðaður við Trabzonspor í Tyrklandi sem og Wolves á Englandi.

Þessi 25 ára gamli Selfyssingur er nú orðaður við AGF sem er í 9. sæti í dönsku úrvalsdeildinni í augnablikinu.

Framherjarnir Morten Nordstrand og Davit Skihrtladze hafa farið frá AGF í þessum mánuði og félagið vill fylla þeirra skarð.

Viðar kemur þar sterklega til greina en hann sló í gegn í norsku úrvalsdeildinni 2014 þar sem hann varð markahæstur með Valerenga.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner