Rekstrartekjur KSÍ á árinu 2015 námu 1.112 milljónum króna samanborið við 1.067 milljónir króna árið á undan. Þessi hækkun skýrist af auknu framlagi frá FIFA.
Rekstrarkostnaður KSÍ var um 956 milljónir króna og hækkar frá fyrra ári um 46 milljónir króna milli ára. Rekstrarhagnaður ársins að teknu tilliti til fjármagnsliða 157 milljónir króna.
Rekstrarkostnaður KSÍ var um 956 milljónir króna og hækkar frá fyrra ári um 46 milljónir króna milli ára. Rekstrarhagnaður ársins að teknu tilliti til fjármagnsliða 157 milljónir króna.
Styrkir og framlög til aðildarfélaga námu á árinu 147 milljónum króna vegna sjónvarps- og markaðsréttinda, styrkja til barna- og unglingastarfs, leyfiskerfis og fleira og voru í samræmi við það sem áætlanir sambandsins gerðu ráð fyrir.
Að teknu tilliti til styrkja og framlaga til aðildarfélaga var hagnaður KSÍ um 11 milljónir króna á árinu 2015. Eignir námu 581 milljón króna en þar af var handbært fé 152 milljónir. Eigið fé KSÍ var 221 milljón króna í árslok 2015.
Athugasemdir