Kongsvinger 2-0 HamKam
1-0 Björgvin Stefánsson ('18 )
2-0 Harald Holter ('72 )
1-0 Björgvin Stefánsson ('18 )
2-0 Harald Holter ('72 )
Haukamaðurinn, Björgvin Stefánsson, var á skotskónum þegar Kongsvinger lagði HamKam, 2-0 í æfingaleik, en Björgvin er á reynslu hjá Kongsvinger þessa daganna.
Björgvin var fljótur á komast á blað hjá Kongsvinger, sem leikur í B-deildinni í Noregi, en hann skoraði á 18. mínútu.
Leikurinn endaði 2-0 fyrir Kongsvinger, en Harald Holter bætti við marki á 72. mínútu í þessum leik sem fram fór í Kongsvingerhöllinni.
Hinn 21 árs gamli Björgvin sló í gegn með ungu liði Hauka á síðasta tímabili og varð markahæstur í 1. deildinni með 20 mörk í 22 leikjum.
Hann hefur vakið athygli erlendra liða í kjölfarið og var meðal annars til reynslu hjá Lilleström, en þar ræður Rúnar Kristinsson ríkjum.
Athugasemdir