Það var ekki mikill glæsibragur yfir 2-0 sigri Barcelona á Levante í spænsku úrvalsdeildinni í morgun en með því að vinna leikinn tókst liðinu að jafna eigið met.
Barcelona hefur leikið 28 leiki í röð í öllum keppnum án þess að tapa leik sem jafnar met félagsins frá tímabilinu 2010-2011 þegar liðið var undir stjórn Pep Guardiola.
Síðasta tap Börsunga kom þann 3.október síðastliðinn þegar liðið tapaði 2-1 fyrir Sevilla.
Liðið getur því bætt metið þegar þeir heimsækja Valencia í seinni leik liðanna í undanúrslitum spænska bikarsins næstkomandi miðvikudag.
Sigurinn í dag var tíundi sigur Barcelona í röð og er markatala liðsins í síðustu tíu leikjum 34-5.
Athugasemdir