Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 08. febrúar 2016 15:00
Magnús Már Einarsson
Lavezzi á leið til Kína
Mynd: Getty Images
Ezequiel Lavezzi, kantmaður PSG, er líklega á leið í úrvalsdeildina í Kína.

Hinn þrítugi Lavezzi verður samningslaus í sumar en líklegt er að hann fari til Kína áður en félagaskiptaglugginn lokar þar þann 26. febrúar.

Lavezzi var ekki í leikmannahópi PSG gegn Marseille í gær þar sem hann var að funda um brottför til Kína.

Kínversk félög hafa eytt háum fjárhæðum í leikmenn að undanförnu en Alex Teixeira, Ramires og Jackson Martinez eru á meðal leikmanna sem hafa samið þar undanfarna daga.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner