mán 08. febrúar 2016 18:30
Magnús Már Einarsson
Sturridge, Coutinho og Origi með Liverpool á morgun?
Daniel Sturridge.
Daniel Sturridge.
Mynd: Getty Images
Daniel Sturridge gæti spilað sinn fyrsta leik síðan snemma í desember þegar Liverpool mætir West Ham í enska bikarnum annað kvöld.

„Hann stóð sig vel á æfingu á föstudag og við vorum opnir fyrir því að láta hann spila í 10-15 mínutur á laugardag (gegn Sunderland)," sagði Klopp.

„Við töluðum við hann og hann sagðist vera klár en svo þróaðist leikurinn öðruvísi því að við þurftum að gera tvær breytingar snemma leiks."

Sturridge gæti hins vegar fengið mínútur á morgun og sömu sögu er að segja af Philippe Coutinho og Divock Origi.

Coutinho og Origi hafa báðir verið frá keppni í rúman mánuð vegna meiðsla aftan í læri.
Athugasemdir
banner
banner
banner