Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 12. febrúar 2016 10:42
Magnús Már Einarsson
Shola Ameobi til Grétars og Eggerts í Fleetwood (Staðfest)
Shola Ameobi.
Shola Ameobi.
Mynd: Getty Images
Framherjinn reyndi Shola Ameobi hefur samið við Fleetwood Town í ensku C-deildinni.

Grétar Rafn Steinsson er tæknilegur ráðgjafi hjá Fleetwood en hann vinnur meðal annars í leikmannamálum fyrir félagið.

Eggert Gunnþór Jónsson er fastamaður á miðjunni hjá Fleetwood en liðið er í 21. sæti í ensku C-deildinni, stigi frá öruggu sæti.

Ameobi lék með Bolton í nokkrar vikur fyrr á tímabilinu en hann hefur verið samningslaus að undanförnu.

Þessi 34 ára gamli leikmaður hefur nánast allan sinn feril spilað með uppeldisfélagi sínu Newcastle en hann spilaði fjórtán tímabil með liðinu áður en hann fór til Gaziantep BB í Tyrklandi árið 2014.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner