Memphis Depay, leikmaður Manchester United hefur ekki beint staðið undir þeim væntingum sem gerðar voru til hans fyrir tímabilið en hann kom til félagsins frá PSV Eindhoven í sumar.
Þar átti hann stórkostlegt tímabil og varð markakóngur í Hollandi með 22 mörk í 30 deildarleikjum auk þess að vera mjög öflugur í öðrum keppnum.
Hann hefur leikið 30 leiki á tímabilinu og gert 5 mörk en hann hefur lítið komið við sögu í seinustu leikjum Manchesterliðsins.

Margir stuðnigsmenn United hafa verið svo ónægðir með kappann að þeir hafa verið að úthúða hann á samskiptamiðlum og það er Louis van Gaal, knattspyrnustjóri United, ekki ánægður með.
Depay spilað með varaliði United á dögunum þar sem hann þótti sýna frábæra takta en í þeim leik lagði hann upp 3 mörk.
„Memphis átti mjög góðan leik og það hjálpar sjálfstraustinu hjá honum. Ég hef séð viðbrögðin hjá stuðningsmönnunum, það er að segja ekta stuðningsmönnunum sem fylgjast líka með U21 árs liðinu,“ sagði Van Gaal.
Athugasemdir