KA menn fara vel af stað í Lengjubikarnum en þeir tóku á móti Fjarðabyggð í Boganum í dag.
Skemmst er frá því að segja að gestirnir að austan sáu aldrei til sólar í leiknum og stjörnuprýtt lið KA vann þægilegan 8-0 sigur.
Skemmst er frá því að segja að gestirnir að austan sáu aldrei til sólar í leiknum og stjörnuprýtt lið KA vann þægilegan 8-0 sigur.
Almarr Ormarsson fór hreinlega á kostum í sínum fyrsta leik fyrir KA síðan 2008 og skoraði þrennu. Þá skoraði einnig Hallgrímur Mar Steingrímsson tvö mörk.
Elfar Árni Aðalsteinsson, Sveinn Helgi Karlsson skorðuðu sitt markið hvor og þá varð Aron Gauti Magnússon fyrir því óláni að skora sjálfsmark.
Lokatölur 8-0
Lengjubikar karla A-deild Riðill 2
KA 8-0 Fjarðabyggð
1-0 Almarr Ormarsson (’25)
2-0 Elfar Árni Aðalsteinsson (’29)
3-0 Almarr Ormarsson (’43)
4-0 Almarr Ormarsson (’63)
5-0 Hallgrímur Mar Steingrímsson (’71)
6-0 Sjálfsmark (’78)
7-0 Hallgrímur Mar Steingrímsson (’81)
8-0 Sveinn Helgi Karlsson (’90)
Athugasemdir