Norsku meistararnir í Rosenberg brjóta jafnréttislög með því að banna kvenkyns fréttamönnum að koma í búningsklefann eftir leiki. Þetta sagði Kristin Mile starfsmaður á jafnréttisstofu í Noregi í morgun. ,,Konur og karlar eiga að hafa sömu starfsréttindi," sagði hún.
Rosenborg leyfir karlkyns fréttamönnum að koma inn í búningsklefann til að ræða við leikmenn en bannar konum að koma inn.
,,Þessi aðgerð er ólögleg nema Rosenborg hafi mjög góða ástæðu til að halda kvenkynsfréttamönnum frá búningsklefanum," bætti hún við.
Mile sagði svo að hún skildi að leikmenn Rosenborg vildu ekki konur í klefanum þegar þeir fara í sturtu en ef það sé málið þá eigi að banna öllum fréttamönnum að koma í búningsklefann.
,,Málið er ekki að konur eigi að fá að fara í búningsklefann en fjölmiðlar eiga að fá jafnan aðgang."
Rosenborg sögðust í morgun ætla að skoða skilning Mile á málinu. ,,Við viljum ekki skemma fyrir réttindum neins til að vinna sitt starf," sagði Endre Storholt talsmaður félagsins.
Hann bætti við að kvenkyns fréttamenn fengju viðtöl við leikmenn eftir að þeir hefðu skipt um föt. En kvenkyns fréttamenn segja að karlkyns kollegar þeirra fái oft betri ummæli í búningklefanum strax eftir leik.




