Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 15. mars 2016 20:02
Alexander Freyr Tamimi
Myndband: Glæsilegt mark Arnórs Smárasonar
Arnór gekk í raðir Hammarby fyrir tímabilið.
Arnór gekk í raðir Hammarby fyrir tímabilið.
Mynd: Hammarby
Arnór Smárason skoraði glæsilegt mark fyrir Hammarby í sænska bikarnum gegn AIK í kvöld. Staðan er nú 1-1 í leik liðanna og framlenging að hefjast.

Arnór kom Hammarby í 1-0 rétt fyrir leikhlé með glæsilegu marki með viðstöðulausu skoti í fjærhornið. Hann hafði fengið langa sendingu frá liðsfélaga sínum og afgreiddi af stakri snilld.

Mikill rígur er á milli Hammarby og AIK, en Haukur Heiðar Hauksson er í byrjunarliði þeirra síðarnefndu.

Þeir Birkir Már Sævarsson og Ögmundur Kristinsson hafa spilað allan leikinn til þessa fyrir Hammarby. Sigurvegari þessarar viðureignar fer í undanúrslit bikarsins.

Hér að neðan má sjá magnað mark Arnórs.



Athugasemdir
banner
banner
banner