3.deildarliði Reynis frá Sandgerði hefur borist liðsstyrkur en þeir Benóný Þórhallsson og Sigurgeir Sveinn Gíslason verða með liðinu í sumar.
Benóný er 23 ára gamall markvörður sem kemur til Reynis á láni frá 1.deildarliði Grindavíkur en hann lék fimm leiki með Grindavík í 1.deildinni síðasta sumar.
Sigurgeir Sveinn hefur leikið með BÍ/Bolungarvík allan sinn feril en hann á 229 leiki í deild og bikar og hefur skorað 30 mörk í þeim.
Hann lék 19 leiki með BÍ/Bolungarvík í 1.deildinni í fyrra þegar liðið féll úr deildinni.
Athugasemdir