Sindri frá Höfn í Hornafirði fékk þrjá leikmenn til liðs við sig í gær en liðið býr sig undir átökin í 2.deildinni í sumar.
Bosníumennirnir Benjamin Dizdaric og Ekrem Hodzic hafa fengið leikheimild með liðinu og geta leikið með Sindra þegar liðið heimsækir Leikni Fáskrúðsfjörð í 64-liða úrslitum Borgunarbikarsins í dag.
Enski markvörðurinn Jack Norton hefur sömuleiðis fengið félagaskipti í Sindra.
Hann er 29 ára gamall og hefur leikið víða í utandeildum Englands og var síðast á mála hjá liði að nafni Brentwood þar í landi.
Sindra var spáð 9.sæti í spá Fótbolta.net en við fengum alla fyrirliða og þjálfara í deildinni til að spá fyrir sumarið. Liðið endaði í 8.sæti deildarinnar á síðustu leiktíð.
Athugasemdir