Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 30. apríl 2016 12:40
Ívan Guðjón Baldursson
New York skoraði úr vel útfærðri aukaspyrnu
Lloyd Sam kláraði færið.
Lloyd Sam kláraði færið.
Mynd: Getty Images
New York Red Bulls lagði FC Dallas, topplið MLS deildarinnar, að velli með fjórum mörkum gegn engu í nótt.

Fyrsta mark heimamanna í New York kom eftir afar vel útfærða aukaspyrnu þar sem fjórir leikmenn stóðu yfir boltanum.

Einn leikmaðurinn stóð fyrir boltanum til að trufla sjónarhorn varnarmanna og næstu tveir hlupu yfir boltann áður en sá þriðji lyfti honum laglega inn í vítateiginn.

Á sama tíma er hægt að sjá hvernig tveir leikmenn New York ná að losa annan þeirra undan dekkningu varnarinnar, og fór vippan beint á lausa manninn sem skallaði knöttinn fyrir markið og mjög auðvelt fyrir samherja að klára.

Til gamans má geta að Lloyd Sam, sem lék fyrir Leeds United frá 2010 til 2012, skoraði markið.




Athugasemdir
banner
banner