Athletic Bilbao 2 - 1 Celta Vigo
0-1 Fabian Orellana ('13 )
1-1 Aritz Aduriz ('38 , víti)
2-1 Raul Garcia ('72 )
Rautt spjald:Gustavo Cabral, Celta ('41)
0-1 Fabian Orellana ('13 )
1-1 Aritz Aduriz ('38 , víti)
2-1 Raul Garcia ('72 )
Rautt spjald:Gustavo Cabral, Celta ('41)
Það var hart barist þegar Athletic Bilbao fékk Celta Vigo í heimsókn í fyrsta leik dagsins í spænska boltanum enda eiga bæði lið enn möguleika á Meistaradeildarsæti.
Fabian Orellana kom gestunum yfir snemma leiks en undir lok fyrri hálfleiks breyttist draumur gestanna í martröð. Fyrst jafnaði Aritz Aduriz metin með marki úr vítaspyrnu á 38.mínútu og þrem mínútum síðar var Gustavo Cabral vikið af velli.
Heimamenn nýttu sér liðsmuninn í síðari hálfleik því Raul Garcia tryggði Bilbao mikilvægan sigur með marki á 72.mínútu.
Athugasemdir